r/Iceland 2d ago

Hvað gerum við þegar Rapyd hættir að samþykkja færslur í hefndaraðgerðum fyrir viðskiptabann?

Er ekki kominn tími til að skipta í Indó?

19 Upvotes

33 comments sorted by

53

u/GlanniGl 2d ago

Notum aðra eins þjónustu??

Indó er ekki færsluhirðir

6

u/sofaspekingur 2d ago

Er indó þá að nota Rapyd til að færsluhirða?

20

u/GlanniGl 2d ago

Ekki hugmynd - er það ekki útgefandi kortsins sem velur færsluhirði?

Ég tek við greiðslum með Teya í mínum rekstri en þegar ég nota kortið mitt - sem er Visa frá Arion þá er það rapyd sem sendir mér upplýsingar um færsluna

Veit ég á að skipta um kort - en letin er harður húsbóndi

7

u/jreykdal 2d ago

Nei það er verslunin sem ákveður það.

8

u/GlanniGl 2d ago

Hún ákveður hvaðan hún fær posa - ég td er með posa frá Teya og fæ daglega greitt frá þeim sölu gærdagsins

En allar færslur á kortið mitt - sem er VISA (Valitor - Rapyd) koma frá Rapyd

En held það sé rétt hjá þér - Rapyd (Visa) er bæði færsluhirðir og kortaþjónusta

3

u/Thr0w4w4444YYYYlmao 2d ago

Engin færslugjöld í Indó

6

u/GlanniGl 2d ago

Þá eru þeir annaðhvort sinn eigin færsluhirðir - eða þeir niðurgreiða færslugjöldin

9

u/Spekingur Íslendingur 2d ago

Það er ekki í höndum indó. Færsluhirðar eru milliliður milli banka og verslunar. Hirðarnir geta verið með netgáttir eða gegnum posa. Stripe og PayPal eru til dæmis færsluhirðar. Þeir eru nokkrir hérna á Íslandi en algengustu eru Teya og Rapyd. Landsbankinn er kominn eitthvað inn á markaðinn líka, en held ég bara með posana.

3

u/GlanniGl 2d ago

Indó getur alveg ákveðið hver sér um færsluhirðingu þeirra korta - þ.e samskipti frá posa á bankareikning

Straumur (kvika) er td eins fyrirtæki og Rapyd

2

u/sofaspekingur 2d ago

En hvað notar indó ef hann er ekki með Rapyd? Notar hann eitthvað af þessum fyrirtækjum?

11

u/Spekingur Íslendingur 2d ago

Bankarnir nota ekki færsluhirða í þeim skilningi sem ég held að þú meinar. Verslun eða netverslun ákveður að nota færsluhirði, aka þjónustu sem sér um að gjaldfæra greiðslur. Færsluhirðirinn tjékkar á móti bankaþjónustu Swift - eða RB - eftir þörfum og tegund fyrirspurnar (ef ég man rétt), og þannig sækir færsluhirðirinn leyfi fyrir greiðslunni/færslunni.

3

u/GlanniGl 2d ago

Sko - viðurkenni að ég hef aldrei skilið þetta almennilega

Ég er með posa frá Teya - þegar ég fæ greidd kaup gærdagsins þá kemur sú greiðsla frá Teya

En ef ég nota Visa kortið mitt frá Arion banka til að borga í mínum eigin posa þá fæ ég tilkynningu um notkun kortsins frá Rapyd

2

u/baldie 2d ago

Það er af því að kortin frá Arion (og Landsbankanum) eru gefin út af Rapyd

3

u/GlanniGl 2d ago

Það sem ég hélt - svo rapyd er bæði færsluhirðir og kortaútgefandi - ekki satt?

2

u/Thr0w4w4444YYYYlmao 2d ago

Enfuce, finnskt fyrirtæki

15

u/oliprik 2d ago

Það verða engar hefndaraðgerðir. Þó svo að öll viðskipti viðskipti yrði lokuð á Ísræl, þá hefði það engin áhrif á rekstur Rapyd EU sem nær yfir alla evrópu enda hefur það ekkert að gera með eigendurnar fyrir sunnan. Það er ekkert peningaflæði á milli nema þá arðgreiðslur og þær eru yfirleitt áframgreiddar svo beint af móðurfélaginu til eigendana á því sem fæstir eru frá Ísræl.

Og svona fyrst við erum byrjaðir þá er meiraðsegja Rapyd EU eina þjónustan sem er með alla færsluhirðinguna á Íslandi, bæði þróunarlega séð, leyfislega séð og er hýst í gagnaverum á landinu. Þannig að ef við förum í þjóðarörygisumræðina með færsluhirðinguna eins og hefur komið oft upp til umræðu, þá myndi greiðslur með kortum frá Rapyd og posum frá Rapyd ekki hætta að virka ef nettenging Íslands yrði rofin frá ummheiminum. Það á ekki við um hinar íslensku færsluhirðana.

Ég sá rök um daginn þar sem einhver sagði að Rapyd EU eru bara að áfram selja vörur svona svipað og Ikea á íslandi er "ekki íslenskt" fyrirtæki. En þetta er öfugt hjá Rapyd þar sem öll starfsleyfin fyrir færsluhirðingu eru á Íslandi og allar vörurnar eru þróaðar hér heima og seldar í gegnum íslensku starfsleyfin.

Í raun er Rapyd EU besta færsluhirðingin á landinu fyrir Íslenska skattgreiðendur þar sem færsluhirðingin hjá Rapyd út um allan heim rennur í gegnum íslenska skattkerfið. Enda er hagnaðurinn vel upp á Íslandi þrátt fyrir sniðgönguna hér heima.

Source: Ég hjá Rapyd á Íslandi (En tala ekki fyrir þeirra hönd, bara mína) og nei ég styð ekki hernaðaraðgerðir Ísræla.

2

u/GlanniGl 2d ago

Hirða þeir fyrir Straum og Teya? Spyr því ég veit ekki

1

u/oliprik 2d ago

Fyrir Straum í sumum tilfellum, en alls ekki öllum. Straumur þarf samt að færa sig frá Rapyd vegna samkeppnislaga. Ekkert fyrir Teya svo ég viti til.

-2

u/GlanniGl 2d ago

Ég var alltaf í viðskiptum við Valitor (leti) svo allt í einu fékk ég greitt frá Straumi - allt varð verra svo ég endaði hjá Teya - sem eru miklu betri

Svo ef ég vil ekki styðja fyrirtæki sem styður barnamorð og sprengingar á spítölum - þá er ég save hjá Teya?

Skv Chatgpt er það í eigu manna frá Brasílíu - sem drepa líklega ekki börn

11

u/benediktkr "séríslenskar aðstæður" 2d ago edited 2d ago

Skv Chatgpt er það í eigu manna frá Brasílíu

LLM eru ekki upplýsingaveitur eða leitarvélar. Ef þú treystir því sem tölfræðilíkön segja þér munt þú trúa mikið af röngum upplýsingum og ekki kunna að afla þér þekkingar sjálf/ur.

Einn af fjárfestum Teya er Valor Capital Group, bandarískt fyrirtæki sem fjárfestir m.a. Brasílískum fyrirtækjum sem gera viðskipti við Bandaríkin. Það eru margir fjárfestar í Teya, m.a. þrír Íslenskir.

11

u/Informal_Barber5229 2d ago

Við? Við förum bara með viðskiptin til þeirra sem eru ekki að styðja fyrirgefið, afsaka fyrirgefið, afneita þjóðarmorði og þjóðernishreinsunum. Í raun þá ættu allir að vera búnir að fara með viðskipti sín eitthvert annað og þau fyrirtæki sem eru ennþá að nýta þjónustu Rapyd eru algjörlega siðferðislega gjaldþrota.

5

u/tobbig 2d ago

Segðu okkur, hvaðan þarf ég að færa og hvert get ég fært. Sem einstaklingur tek ég aldrei eftir því hvort ég sé að fara með mín viðskipti til Rapyd eða annað.

4

u/Illustrious_Sand_703 2d ago

Sem einstaklingur skiptir mestu máli að versla við fyrirtæki sem nota ekki Rapyd sem færsluhirði. Þessi síða var sett upp svo almenningur gæti áttað sig á því: https://hirdir.is/

-2

u/Thr0w4w4444YYYYlmao 2d ago

Er það satt að í hvert sinn sem þú notar kort frá Arion þá fá Rapyd greiðslu sem þeir nota til að fjármagna dráp á saklausum fyrirgefið, sekum börnum?

4

u/Informal_Barber5229 2d ago

Holy fokking rökstökk…

4

u/Spekingur Íslendingur 2d ago

Það meikar lítið sense. Hvaða tenging á að vera þarna á milli nákvæmlega?

-1

u/Thr0w4w4444YYYYlmao 2d ago

Rapyd er Ísraelskt fyrirtæki sem drepur harðsvírug hryðjuverkabörn með peningunum okkar, held ég.. ég er ennþá að bíða eftir staðfestingu.

2

u/Spekingur Íslendingur 2d ago

Ég meina tenginguna á milli Arion og Rapyd

3

u/Illustrious_Sand_703 2d ago

Arion átti fyrirtækið þegar það hét Valitor. Rapyd keypti síðan Valitor af Arion minnir mig. Líklega er tengingin við Arion arfur frá þeim tíma.

1

u/Spekingur Íslendingur 2d ago

Ah já, einu sinni var

1

u/GlanniGl 2d ago

Ef þú ert með kredit eða debitkort frá Arion - þá er það gefið út af Rqpyd

1

u/BugBagBundle 19h ago

Er ekki bara hægt að setja upp einn rekka í RB sem sér um þetta?