r/Iceland • u/stjania92 • 3d ago
r/Iceland • u/logos123 • 4d ago
Stytta þurfi sumarfrí barna um að lágmarki tvær vikur - Vísir
Á ekki börn sjálfur en orðinn nógu gamall til að sumir vinir mínir eiga börn á grunnskólaaldri og mv það sem ég heyri frá þeim þá eru þessi sumarfrí einmitt ótrúlega mikið vesen alveg hreint, svo þessi pæling hljómar ekki algalin.
Fagnar einfaldara kerfi en óttast að atvinnumöguleikar öryrkja verði ekki tryggðir - RÚV.is
r/Iceland • u/shepardsboy • 2d ago
What's it like living in Iceland from a (trans) American's perspective?
I'm from the US and wanting to move somewhere that isn't the US when I graduate in a few years.
The thing that made me interested in Iceland originally is that it is rated as the best country for trans people in Europe, why is it rated like this and what's it like being trans in Iceland?
I know it can be pretty cold during the winter, how does it compare to new England or upstate NY? Also, how is the weather generally, like is it raining constantly or mostly sunny?
This might make me sound like an idiot but are the volcanoes ever an issue? When I was a kid I had a really bad fear of volcanoes, I'm mostly over it now but if I saw lava or something I'd start tweaking
How widely is English understood? Obviously I'll learn Icelandic if I do end up moving but it seems pretty different from English so I doubt I'll be fluent any time soon
r/Iceland • u/throsturh • 4d ago
Geðveikar fréttir fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi!
Þökk sé þessu námskeiði í september, munum við eiga von á góðri og nauðsynlegri viðbót við íslenskt heilbrigðiskerfi. Ég er að reyna ná sambandi við þjóðkirkjuna til að hún geti fjölmennt á þetta og svo farið á krabbameinsdeildir og aðra vígstöðvar til að lækna íslendinga sem glíma við sjúkdóma. Ef þið þekkið einhvern hjá kirkjunni, endilega látið þau vita. Þetta er líka sniðugt fyrir einhvern sem ætlar í lækna- eða hjúkrunarfræði nám en nennir ekki að eyða mörgum árum í því – Betra að skella sér á nokkra daga námskeið og þá er þetta komið! Guð er góður!
r/Iceland • u/BaraGaman • 3d ago
Ófaglærðir rafvirkjar
Hvað eru ómenntaðir rafvirkjar/nemar að fá í laun?
r/Iceland • u/paaalli • 4d ago
Loftslagsverkfræði: Verkefni sem borgar sig ekki að láta bíða - Vísir
Auðveldlega besta skoðanagrein ársins og ég segi það ekki bara því ég er höfundur 😌.
r/Iceland • u/Greifinn89 • 4d ago
Menningarráðherra skipaði son heilbrigðisráðherra í formannsstörf - Vísir
Var einhver að ræða bransabörn?
r/Iceland • u/DangerDinks • 4d ago
Bíla(ljósa)vesen
Ég var að lenda í því að bíllinn minn, Ford Focus 2014, sýnir viðvörun um eitthvað ljósavesen. Líklega eitthvað tengi vesen þar sem bæði framljósin fóru af.
Nú er ég ekki týpan sem nenni/þori að gera við svona sjálfur. Eruð þið með reynslur af einhverju verkstæði sem er ekki að svíkja útúr ykkur pening fyrir að gera við svona hluti?
r/Iceland • u/semloh666kcolrehs • 3d ago
[TOMT][Tv Show][2000s] Episode of a kid show I saw in my youth in Iceland
r/Iceland • u/Packero • 4d ago
Wegovy aukaverkanir.
Listinn yfir aukaverkanir er frekar drjúgur og ég átta mig ekkert á hversu algengar þær eru í raun og Veru. Hafið þið upplifað eða heyrt um miklar aukaverkanir? Læknirinn minn skrifaði upp á þetta en ég er óviss um hvort ég þori að nota þetta.
Looking for bicycle deck of cards
Hello
I am looking for a deck of bicycle cards to buy Anyone know where I can find them?
r/Iceland • u/daggir69 • 4d ago
Stöðvunarskylda
Um hvað er þessi stöðvunarskylda. Hvað er það?
r/Iceland • u/Lopsided-Piece-8386 • 4d ago
Næringa-matvælafræði
Hefur eitthver verið á matvælabraut eða næringafræði i haskola og var námið erfitt og hvaða vinnu fenguð þið eftir námið og hvernig eru launin?
Fékk leyfi héraðsdóms til að vera viðstödd kistulagningu eiginmanns og dóttur - RÚV.is
r/Iceland • u/BottleSad505 • 4d ago
Eru einhverjir hunda þjálfarar á Akureyri?
Þetta er þriðji hundurinn minn sem ég á, hann er Border Collie og áður en einhver kemur með ræðu af hverju ég ætti ekki að fá mér þannig hund þá vil ég bara segja það núna:
Ég er búinn að fá nóg um það, og ég veit hvað ég er að gera.
Með það sagt, þá vill ég segja að ég er búin að fylgja mörgum ‘hunda-training’ vídjóum og “seiva” hér og þar en væri til í að fá svona “personalised” þjálfun þar sem ég get séð þetta í persónu og kannski kært af einhverjum mistökum sem ég er að gera.
Móðir mín (bý nú ennþá hjá henni, er nú ekkert voða gamall til að búa einn ennþá) er búin að reyna finna á Facebook en hefur ekki fundið neitt. Og siðasta námskeið sem hún fann þá hafði það byrjað þegar við vorum að fara annað, og hún hefur ekkert minnst á að hafa fundið neitt nýlega
r/Iceland • u/jafetsigfinns • 4d ago
DV.is Fjársvik á netinu
Hefur einhver hérna reynslu af því að það hafi verið svikinn peningur af kortinu ykkar nýlega?
Mamma mín lenti í því að einhverjum óprúttnum aðila tókst að panta fyrir mjög mikinn pening í hennar nafni á síðum eins og Temu, en bankinn vill meina að hún hafi auðkennt þessar greiðslur (sem hún gerði aldeilis ekki). Ég er að upplifa rosa mikið að bankinn sé að hugsa fyrst og fremst um eigin hagsmuni frekar en viðskiptavina sinna og það eina sem við fáum frá þeim er í raun bara "sorry en þar sem þú auðkenndir getum ekkert gert :/" þó svo að það séu engar sannanir fyrir því að mamma hafi auðkennt þetta.
Þetta eru MJÖG dubious færslur og ég er eiginlega bara í sjokki að bankinn sé ekki með eitthvað kerfi sem flaggar svona færslur löngu áður en þær fara í auðkenningu til að byrja með (bankinn sem ég er sjálfur í gerir það með talsvert lægri upphæðir) og í þokkabót hringdi bankinn í hana af fyrra bragði innan við hálftíma eftir að færslurnar höfðu verið samþykktar, en gat samt ekki afturkallað þetta og skildi í raun alla ábyrgðina eftir hjá mömmu að fara og finna út úr þessu sjálf.
Er ekki endilega að leita að ráðum, bara hvort það séu einhverjar reynslusögur hérna af svipuðu og þá hvernig það endaði allt saman? Það má senda mér einkaskilaboð ef þið viljið ekki tala um þetta opinberlega hérna.
r/Iceland • u/Valuable_Safe_8770 • 5d ago
Þráður fyrir óvinsælar skoðanir
Hvaða skoðanir hafi þið
r/Iceland • u/hremmingar • 5d ago
Nepo-börn íslands?
Hverjir mynduð þið segja væru helstu nepo-börn Íslands? Meina það er of auðvelt að nefna samherja börnin en hvað annað?
r/Iceland • u/SunnyBear0806 • 5d ago
Viðgerð á Gameboy color
Fann gamla Gameboy minn og fullt af leikjum. Það er hægt að spila á hann en það er ekki hægt að vista leiki, eins og minnið er eitthvað bilað.
Er einhver staður sem gerir við gamla Gameboy-a?
r/Iceland • u/No_Garage1152 • 5d ago
Taxi með Uber
Sá Taxa áðan sem var líka merktur Uber með stórum stöfum yfir fram og afturhurðirnar báðum megin. Why?
r/Iceland • u/True-Term7606 • 6d ago
Hvaða fréttir eru sagðar á hverju ári eins og glæný frétt?
Mér finnst svo merkilegt að heyra fréttir koma aftur og aftur, ár eftir ár, um eðlileg mál sem eru algerlega fyrirsjáanleg, og fréttamenn láta eins og þetta sé alveg glænýtt og óvænt.
T.d. meiri umferð þegar skólarnir byrja. Viðtöl við alls konar sérfræðinga til að meta stöðuna o.s.frv.
Hvaða fréttum takið þið eftir sem eru svona?
r/Iceland • u/Interesting-Egg-1360 • 5d ago
Hvernig fæ ég aðgang að rafbókasafninu? (Libby app)
Ég er að reyna að nota appið libby og ég verð að vera með bókasafnskort hjá Borgarbókasafninu. Veit einhver hvernig ég fæ aðgang án þess að fara þangað?
r/Iceland • u/Fishy-Mousse1001 • 5d ago
Kaupa second hand miða af tix?
Hvernig virkar það ef maður kaupir svona digital tix miða af einhverjum á facebook eða eitthvað, geta þeir ekki bara hirt peninginn og mætt svo sjálfir með miðann eða selt hann aftur og aftur til nokkurra sem mæta svo allir og enginn (nema sá fyrsti kannski) kemst inn?
Er eitthvað trix til að geta tryggt það að eintakið sem maður kaupir sé það eina í umferð (ef svo má að orði komast) og maður komist inná tónleikana?