r/klakinn Jul 06 '25

Ruslpóstur ♻️ Álfar

Post image
140 Upvotes

13 comments sorted by

42

u/Total_Willingness_18 Jul 06 '25

Ég er í hópi sem kallast r/Polandball, þar sem maður gerir myndasögur þar sem sögumennirnir eru kúlulaga lönd. Ég er eini Íslendingurinn sem hefur búið til svona myndasögur svo sem ég veit, og vildi heyra hvað öðrum Íslendingum finnst um þetta. Ég hef gert fleiri svona þannig að ef fólki líkar við þetta get ég sent hinar sögurnar líka.

Ég væri líka til í að heyra hvort ég sé að dreifa ranghugmyndum um Ísland, því ég er bara einn gæji og hef ekki endilega góða hugmynd um hvað Íslendingum finnst almennt

20

u/AutisticIcelandic98 Ísland Jul 06 '25

Það hljómar bara fínt fyrir mér sko, en ég er ekki ráðherrann hér.

13

u/Total_Willingness_18 Jul 06 '25

Ætti maður að fá Hundadagakonung til þess að dæma þetta?

5

u/Don_Ozwald Jul 06 '25

Mér finnst þetta að mestu leyti mjög gott en punchline-ið er samt ekki að virka fyrir mig. En það er svosem bara smekksatriði

3

u/Total_Willingness_18 Jul 06 '25

Já ég er meira að pæla hvort ég sé að dreifa einhverjum ranghugmyndum. Ég er enginn séní í þessu sko

7

u/ogginn90 Jul 06 '25

Þetta er gott stuff, en ekki hafa áhyggjur af ranghugmyndum... fólk heldur að allir utan Reykjavíkur búa í torfbæum, íshellum eða snjóhúsum(Fór 2x á ráðstefnu í framhaldsskóla í Tyrklandi um fordóma og staðalímyndir, fyrir 2010) Þegar ég rugla í útlendingum bulla ég bara eins mikið og ég get og blanda saman ævintýrum og sögum... tröll, gríla, jólasveinar og álfar... stríðið milli þeirra og hvernig víkingarnir gáfu upp á stríðsháttum í skiptum fyrir frið þeirra á milli...

5

u/Total_Willingness_18 Jul 06 '25

Einu sinni sagði einn vinur minn að hann fór upp að einhverjum túristum sem voru að taka mynd af einhverri styttu, og fór að segja þeim að þetta væri afi hans og kom með allskonar uppspuning bara til þess að rugla í þeim. Hann segir að þetta sé það skemmtilegasta sem hann gerir. Hann er auðvitað í leiklist.

En takk fyrir, ætti ég að senda fleiri myndasögur? Veit ekki hvort fólk hafi einhvern áhuga á þeim hérna

6

u/ogginn90 Jul 06 '25

Allt content sem þú gerir bætir þig í að gera content... go for it!

9

u/joelobifan Jul 06 '25

ÁLFTANES MENTIONED RAHHH. HVAÐ Í ÓSKÖPUNUM ER BÚÐ

4

u/1nsider Jul 06 '25

Blákaldar staðreyndir.

3

u/Tyrondor Jul 07 '25

Minnir mig alltaf á þennan eina stein sem vegagerðin reyndi að færa en allar vinnuvélarnar biluðu þegar þeir reyndu svo þeir gerðu veginn í kring.

3

u/Total_Willingness_18 Jul 07 '25

Ég heyrði einmitt eitthvað svoleiðis fyrir löngu sem gaf mér hugmyndina

4

u/evalisv Jul 07 '25

Minnir að það sú saga sé akkúrat um Álfhólsveg haha.